UMFG
Heim > Saga
ţriđjudagur, 07 september 2010
 
 
Saga Knattspyrnudeildar Senda
Skođa
Saga Knattspyrnudeildar
Síđa 2
Síđa 3
Síđa 4
Síđa 5
Síđa 6
Síđa 7
Síđa 8
Merkisár
1935 - Íþróttafélag Grindavíkur stofnað 3. febrúar.  Fyrsta stjórn Jón Tómasson, Tómas Þorvaldsson, Guðlaugur Magnússon, Hlöðver Einarsson.
1948 - Malarvöllurinn, þar sem nú er aðalvöllur félagsins, tekinn í notkun.
1963 - UMFG stofnað.  Fyrsti formaður var Jón Leósson.
1969 - Grindvíkingar tók fyrst þátt í Íslandsmótinu og léku í 3. deild.
1977 - Búningsklefar teknir í notkun við gamla malarvöllinn.
1977 - UMFG skipt í fjórar deildir.  Knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild, júdódeild og handknattleiksdeild.
Image
stjórn knattspyrnudeildarinnar 1981
efri röð frá hægri Ragnar Ragnarsson form. 82-83, Bjarni Andrésson form. 97-99, Sigurður G. Ólafsson form. 77-79
neðri röð frá hægri Sigurgeir Guðjónsson gjaldkeri, Jónas Karl Þórhallsson form. 86-87, 00-06, Gunnlaugur J. Hreinsson form. 84-85 og 88, Gunnar Vilbergsson form 80-81, 89-93
1977 - Ragnar Eðvarsson varð fyrstur Grindvíkinga til að leika fyrir Íslands hönd með U-18 landsliðinu.
1977 - Grindvíkingar leika í fyrsta skipti í úrslitum 3. deildar
1980 - Mfl. karla vann sér sæti í efstu deild innanhúss.
1980 - Léku Grindvíkingar í úrslitum 3. deildar en náðu ekki að sigra.
1981 - Þriðja atlagan gerð að 2. deildinni, enn án árangurs.
1986 - Félagsheimili deildarinnar, Gula húsið, formlega vígt þann 26. júlí.
1987 - Grasvöllurinn vígður þann 13. júní.  UMFG - Leiknir 4-2.
1988 - 2. flokkur karla Íslandsmeistari innanhúss.
1989 - Grindvíkingar sigra í 3. deild og vinna sér sæti í 2. deildinni.
1993 - Æfingasvæði austan gamla malarvallarins vígt.
1994 - Grindvíkingar vinna sér sæti í úrvalsdeildinni undir stjórn Lúkasar Kostic.
1994 - Grindavík leikur til úrslita í bikarkeppni KSÍ gegn KR á Laugardalsvellinum.  KR sigraði 2-0. Rúmlega 7.000 áhorfendur mættu.
1994 - Búningsaðstaðan stórlega bætt með nýju 200 fermetra húsi.
1995 - 4. flokkur kvenna Íslandsmeistari undir stjórn Pálma Hafþórs Ingólfssonar
1998 - Meistaraflokkur kvenna vinnur sér sæti í efstu deild undir stjórn Pálma Hafþórs Ingólfssonar.
1999 - GK '99 stofnað. Hlutafélag um knattspyrnuna í Grindavík.
1999 - Grétar Hjartarson með þrennu í Landssímadeildinni, var valinn efnilegasti leikmaðurinn, vann bronsskóinn og valinn í lið ársins.
2000 - Grindvíkingar deildarbikarmeistarar eftir sannfærandi sigur á Val í úrslitaleik.
2000 - Grindvíkingar  tryggja sér sæti í TOTO keppni Evrópusambandsins.
2001 - Stúka á aðalleikvanginum vígð 17. júní.
2001 - Fyrsti Evrópuleikur Grindvíkinga gegn liði frá Bakú í Azerbedjan
2002 - Grindvíkingar tryggja sér sæti í Evrópukeppni félagsliða í fyrsta sinn.
2002 - Grétar Hjartarsson markakóngur Símadeildarinnar, tryggir sér gullskóinn og valinn í lið ársins ásamt Ólafi Erni Bjarnasyni.
2003 - Ólafur Örn Bjarnason valinn í lið ársins
2003 - Grindavík mætir FC Kärnten í Evrópukeppni félagsliða 14. og 28. ágúst
2007 - Grindavík 1.deildar meistarar


Samstarfsađilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið