|
Eins og ég kom inn á í pistli mínum í gær þá var leikur gærkvöldsins á móti Keflvíkingum gríðarlega mikilvægur upp á framhaldið í deildinni og vannst flottur sigur, 76-72 og það þrátt fyrir að skorunarmaskínuna Pál Axel hafi vantað!l
Leiksins verður ekki minnst fyrir mikil sóknargæði en þessi lið hafa í gegnum tíðina fyrir þekktari fyrir þá hlið körfuknattleiksins heldur en varnarleikinn. Í kvöld voru það þó varnirnar sem réðu ríkjum og höfðum við betur í þeirri baráttu og unnum að lokum mjög mikilvægan sigur. Flake var frábær í kvöld og var óstöðvandi fyrstu 3 fjórðungana en þá var hann held ég kominn með þau 29 stig sem hann endaði með. Hann var 1 skitnu frákasti frá tvöfaldri tvennu og nýtti öll 11 vítaskot sín sem er frábært. Keflvíkingar réðu nákvæmlega ekkert við hann. Ómar var enn og aftur með tvennu, skoraði 12 stig og tók 10 fráköst en auk þess varði hann 3 skot, þar af 1 glæsilega undir lok leiksins sem fékk alla Grindvíkinga til að rísa úr sætum sínum. Lalli var sömuleiðis með flottan leik, 11 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar og þristurinn Gulli skilaði 10+ í framlagi með sínum 9 stigum, 6 fráköstum og 5 stoðsendingum. Gulli hitti reyndar ekki nema 3/11 3-stiga skotum sínum en mörg skotanna dönsuðu trylltan stríðsdans á hringnum!! Auðvitað hefðum við vilja vinna leikinn stærra til að öðlast betri innbyrðisstöðu gegn Keflvíkingum en ennþá er ómögulegt að spá fyrir um lokaniðurröðun í deildinni. Okkur varð að ósk okkar varðandi Tindastólssigur því Stólarnir unnu Snæfell á heimavelli, 99-91 og ef við skoðum stöðuna í deildinni eftir þá leiki sem búnir eru í þessari umferð og setjum dæmið upp bæði m.v. Stjörnusigur og Njarðvíkursigur á morgun, þá er þetta útkoman skv. mínum kokkabókum. Njarðvíkursigur KR 3 töp Njarðvík 5 töp 67% vinningshlutfall á móti okkur og Keflavík Grindavík 5 töp 50% vinningshlutfall á móti Njarðvík og Keflavík Keflavík 5 töp 33% vinningshlutfall á móti okkur og Njarðvík Snæfell 6 töp Betri innbyrðisstaða gegn Stjörnunni Stjarnan 6 töp Verri innbyrðisstaða gegn Snæfelli
Stjörnusigur KR 3 töp Grindavík 5 töp 75% vinningshlutfall gegn Keflavík og Stjörnunni Keflavík 5 töp 50% vinningshlutfall gegn okkur og Stjörnunni Stjarnan 5 töp 25% vinningshlutfall gegn okkur og Keflavík Snæfell 6 töp Unnu fyrri leikinn á móti Njarðvík Njarðvík 6 töp Töpuðu fyrri leiknum á móti Snæfelli.
Þessar pælingar mínar eru auðvitað bara til gamans gerðar og veit ég ekki hvað spekúlantar KKÍ myndu segja við þeim en auðvitað skekkir þessa mynd að liðin eru búin að leika mismarga leiki á móti hvort öðru. Og auðvitað þarf ekkert að taka fram að það skiptir nákvæmlega engu máli hvernig staðan í deildinni er núna þegar 3 umferðir eru eftir óleiknar og m.v. hvað margir innbyrðisleikir eiga eftir að fara fram eru talsvert miklar líkur á að lokastaðan eigi eftir að breytast eitthvað. Svona líta lokaumferðirnar út: 20.umferð Fsu – Tindastóll Keflavík – Njarðvík Breiðablik – Hamar Snæfell – Grindavík Stjarnan – KR Fjölnir – ÍR
Þessi umferð er náttúrulega svakaleg!! Öll 6 toppliðin að mætast og einnig mikilvægir leikir varðandi síðustu sæti inn í úrslitakeppnina og fallbaráttuna.
21.umferð Hamar – Stjarnan Njarðvík – Snæfell Breiðablik – Fjölnir KR – Keflavík Grindavík – Fsu Tindastóll – ÍR
2 risaleikir í þessari umferð!!
22.umferð ÍR – Grindavík Fsu - Njarðvík Snæfell – KR Keflavík – Hamar Stjarnan – Breiðablik Fjölnir – Tindastóll. KR með 3.leikinn í röð gegn einum af topp 6 liðunum.....
Auðvitað þurfa öll liðin að hugsa um sig sjálf og einbeita sér að því að vinna sína leiki en af toppliðunum 6 má segja að við séum fyrirfram með auðveldasta prógrammið því við þurfum bara að mæta 1 af toppliðunum og KR-ingar og Snæfellingar eiga erfiðustu prógrömmin því lokaumferðirnar 3 eru allar á móti topp 6 liðum. Stjarnan, Keflavík og Njarðvík þurfa 2x í lokaumferðunum að kljást við slíkan andstæðing. Það er hægt að fara í endalausa hringi með þessar pælingar og eru þær auðvitað eingöngu til gamans gerðar eins og áður hefur komið fram. Við Grindvíkingar höfum bara hið fornkveðna áfram í huga, að taka fyrir einn leik í einu og næst er svo sannarlega um enn einn stórleikinn að ræða, á móti Snæfelli á útivelli! Kærkomið tækifæri eftir bikarvonbrigðin að sýna þeim bæði hvar Davíð keypti ölið og í tvo heimana og að lokum að launa þeim lambið gráa!!
Áfram Grindavík!!
|