Það má segja að allir leikir sem eftir eru í Deildarkeppninni séu stórleikir en leikur morgundagsins hjá okkar mönnum er kannski sérstaklega stór en þá koma nágrannar okkar úr Reykjanesbæ, n.t. Keflavík, í heimsókn og hefst leikurinn kl. 19:15. Það þarf ekkert að taka það fram að allir eru hvattir til að mæta á þennan leik og láta vel í sér heyra!
Staðan í deildinni er svona fyrir þessa umferð: KR 3 töp Keflavík 4 töp Grindavík 5 töp Snæfell 5 töp Stjarnan 5 töp Njarðvík 5 töp Fjölnir 12 töp Hamar 12 töp ÍR 13 töp Tindastóll 13 töp Breiðablik 14 töp Fsu 17 töp
Umferðin lítur svona út: Grindavík – Keflavík Tindastóll – Snæfell Hamar – Fjölnir KR – Breiðablik Njarðvík – Stjarnan ÍR – Fsu. Fyrirfram er auðvelt að spá fyrir um úrslit í 4 af þessum 6 leikjum þó vissulega geti alltaf allt gerst en þessir 2 erfiðu leikir eru að mínu mati Grindavík – Keflavík og Njarðvík – Stjarnan. Einhvern veginn átti ég von á Tindastólsmönnum sterkari eftir að þeir fengu hinn frábæra kana, Cedric Isom til liðs við sig fyrir stuttu og hver veit, kannski eiga þeir eftir að stríða Snæfellingum sem státa ekki af nema 5 sigrum af 9 á útivelli. 5/5 lítur vel út ekki satt og eigum við ekki bara að óska eftir Tindastólssigri á morgun?? KR er væntanlega með auðveldan sigur á móti Breiðablik en erfiðara er að spá fyrir um leik Njarðvíkur og Stjörnunnar. Hinir leikirnir skipta okkur ekki öllu máli að svo komnu máli en vonandi munum við enda í 1. eða 2.sæti í Deildarkeppninni og þ.a.l. munu úrslit leiks Hamars og Fjölnis skipta máli en þau lið eru bæði með 12 töp fyrir þessa umferð og mætast í Hveragerði.
En að leik okkar manna á móti Keflavík. Ef þessi lið enda með jafnmörg stig þá þurfum við að vinna með 9 stigum hið minnsta, nema að við vinnum með 8 stigum en þá mega Keflvíkingar ekki skora fleiri en 89 stig en Keflavík vann okkur í fyrri umferðinni, 97-89. En ef fleiri en tvö lið enda með jafnmörg stig þá gildir hvaða lið er með flesta sigra á móti hinum liðunum sem eru með jafnmörg stig. T.d. erum við með jafnmörg stig og Snæfell, Stjarnan og Njarðvík en erum efstir þeirra liða því við erum með 4 sigra á móti þeim. Snæfell og Stjarnan eru með með 2 sigra í þessum innbyrðisviðureignum en Snæfell er ofar á töflunni vegna betri innbyrðisstöðu gegn Stjörnunni en Njarðvík er neðst þessara liða því þeir hafa bara unnið 1 leik.
Þá sem helst þarf að stoppa hjá Keflvíkingunum eru Draelon Burns og Hörður Axel Vilhjálmsson. Burns hefur skorað 21,7 stig, tekið 5,4 fráköst, gefið 4,4 stoðsendingar og stolið 2,4 boltum að meðaltali í leik í vetur. Hörður hefur skorað 18,7 stig, tekið 4,6 fráköst, gefið 4,4 stoðsendingar sömuleiðis og einnig stolið 2,4 boltum eins og Burns. Ekki má gleyma tröllinu inn í teig Keflvíkinga, landsliðsmanninum Sigurði Þorsteinssyni en hann hefur tekið flest fráköst Keflvíkinga og varið flest skot.
Af okkur er allt gott að frétta og fyrir utan vonbrigðisbikarúrslitaleikinn erum við heitasta lið landsins og höfum við einungis tapað 1 leik í seinni umferðinni, á móti Fjölni og það á heimavelli! Vonandi heldur þetta góða gengi okkar í deildinni áfram og er einfaldlega mjög mikilvægt að vinna þennan leik á morgun og helst með fleiri stigum en 8 til að tryggja okkur betri innbyrðisstöðu gegn Keflvíkingum en of mörg EF eru inni í spilunum til að skoða af einhverju viti, stöðu Keflvíkinga í innbyrðisviðureignum gegn hinum liðunum sem verða með 5 töp eftir leiki þessarar umferðar. Það er mjög mikilvægt að tryggja sér 2. eða hvað þá 1.sætið í Deildarkeppninni vegna fyrirfram auðveldari andstæðings í 1.umferð úrslitakeppninnar og heimaleikjarétts í undanúrslitum og lokaúrslitum ef 1.sætið yrði tryggt. Höfum samt hið fornkveðna að leiðarljósi og tökum bara einn leik fyrir í einu og á morgun er það stórleikur á móti Keflavík og eru enn og aftur allir hvattir til að láta sjá sig og láta vel í sér heyra. Áfram Grindavík!! |