UMFG
Heim > Ég held með Grindavík
föstudagur, 10 september 2010
 
 
Ég held með Grindavík Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 07 maí 2009

Í þætti um Pepsi deild karla á Stöð 2 sport í gær var frumflutt nýtt lag sem Bergur Ingólfsson samdi og var tekið upp í Geimstein á dögunum þar sem meistaraflokkur karla söng með.

Lagið er hægt að nálgast hér
Diskur með laginu og 7 öðrum frábærum stuðningsmannalögum verður seldur eftir helgi í Gulahúsi og fleiri stöðum.


Textinn við lagið er eftirfarandi:
Einu sinni spurði ég pabba
hvað hann teldi vera dyggð.
Hann sagði: ,,Það þykir mér göfugt
að þjóna sinni heimabyggð."

Stuttu síðar spurði ég mömmu
um það versta sem gæti skeð.
Hún sagði: ,,Allt verður í besta
bara ef þú veist hverjum þú heldur með."

Og ég held með
GRINDAVÍK, GRINDAVÍK.
Ég held með - GRINDAVÍK.

Það mælti mín móðuramma
er ég mætti á hennar dánarbeð:
,,Þú munt ei eiga ævina skamma
ef þú manst eftir að halda með - GRINDAVÍK.

Einhverntíma eignast ég börn,
nokkur agnarlítil peð.
Það verður þeim í lífinu vörn
að velja rétt og halda með.

Ég held með
GRINDAVÍK, GRINDAVÍK.
Ég held með
GRINDVÍK.

Image
< Fyrri   Næst >
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið