|
Unglingalandsmót 2010 |
|
|
Höfundur Bjarni Már Svavarsson
|
|
miðvikudagur, 04 ágúst 2010 |
Það var flottur hópur frá Grindavík sem mætti á Unglingalandsmótið en aldrei hafa fleiri farið frá Grindavík en keppendur voru 30 talsins en af þeim gistu um 20 á tjaldstæðinu og voru alls 77 keppendur og gestir á tjaldstæði Grindvíkinga. Og voru allir Grindvíkingum til sóma innan vallar sem utan.
Keppendur stóðu sig frábærlega og náðum við 2 liðum í fjögurra liða úrslit í flokki 13-14 ára í körfunni eldra liðið varð í 2 sæti en það yngra í 4 sæti.
Þeir keppendur frá Grindavík sem kepptu sem einstaklingar í körfunni komust allir í úrslit sem sýnir hvað við eigum marga efnilega körfuboltasnillinga. Sumir úr körfuboltaliðunum kepptu í Golfi Frjálsum og Knattspyrnu og stóðu sig vel.
Strákarnir sem kepptu í knattspyrnu urðu í 12 sæti en þar vakti einna helst athygli hinn ungi Viktor Hauksson sem stríddi oft strákum sem hann náði rétt svo uppí nafla.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 1 - 15 af 88 |