|
Reykjanes-cup |
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
föstudagur, 03 september 2010 |
Nú stendur yfir Reykjanes-cup sem haldið er ár hvert í tengslum við Ljósanótt. Í gær var spilað í Grindavík þar sem öll Suðurnesjaliðin töpuðu. Leikirnir fóru þannig: Grindavík 98 - Fjölnir 101 Keflavík 66 - ÍR 89 Njarðvík 92 - Snæfell 102
Í kvöld er leikið í Keflavík og á Grindavík leik klukkan 21:00 þegar þeir mæta ÍR
Einnig eru stelpurnar að leika í hraðmóti UMFN og Kosts sem einnig er haldið í tilefni Ljósanætur. Þær byrjuðu að spila við Njarðvík og töpuðu 41-44. Í næsta leik sigruðu þær Haukastelpur 32-25 en í framlengdum leik við Hamar máttu þær þola tap 38-41
Í kvöld fara úrslitaleikirnir fram, Grindavík og KR mætast klukkan 16:45 og leikir um sæti seinna um kvöldið. |
|
|
Reykjanes cup og hraðmót Njarðvíkurkvenna. |
|
|
Höfundur Sibbi
|
|
miðvikudagur, 01 september 2010 |
|
Eins og allir vita þá er körfuboltinn byrjaður að skoppa og taka meistaraflokksliðin okkar bæði þátt í mótum um helgina, í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. |
|
Nánar...
|
|
|
Ljósanætur-hraðmót |
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
þriðjudagur, 31 ágúst 2010 |
1.-3. september fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík hraðmót í tengslum við Ljósanótt. Kvennalið Grindavíkur tekur þátt ásamt flestum af sterkustu liðum landsins að viðbættu U-16 ára landsliðinu.
Grindavík mætir Njarðvík í opnunarleiknum á morgun miðvikudag klukkan 17:00. Klukkan 18:30 mæta þær Haukum og klukkan 20:00 Hamar.
Úrslitaleikir fara svo fram á föstudaginn. |
|
|
Yfirlýsing frá stjórn körfuknattleiksdeild Grindavíkur |
|
|
Höfundur Stjórn kkd. UMFG
|
|
þriðjudagur, 24 ágúst 2010 |
Stjórn kkd. UMFG vill koma því á framfæri að grein sú sem birtist á heimasíðu UMFG fimmtudaginn 19 ágúst og skrifuð af Ólafi Þór Jóhannssyni lýsir eingöngu hans skoðun. Einhverjar sögusagnir hefur stjórnin heyrt um að hún standi að einhverju leiti að baki greininni, en það á sér enga stoð
Greinin er skrifuð af Ólafi og þar lýsir hann sinni skoðun.
Auðvitað þykir okkur leitt að missa þessa leikmann frá okkur ,sérstaklega þar sem við þetta eru ákveðnir burðarstólpar í hópnum. Við verðum að virða þeirra ákvarðanir og vonast jafnframt eftir því að þær komi fljótt til baka og spili í Grindavíkurbúningum ,reynslunni ríkari.
Stjórnin vill óska Ingibjörgu og Írisi alls hins best í framtíðinni og megi þeim vegna vel á nýja staðnum . Þær eru ævinlega velkomnar aftur |
|
|
Hvar er Grindavíkurhjartað? |
|
|
Höfundur Ólafur þór Jóhannsson
|
|
fimmtudagur, 19 ágúst 2010 |
|
Nú stendur stjórn körfunnar frami fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort
draga eigi kvennaliðið í úrvalsdeild úr keppni vegna skorts á
leikmönnum. Það yrði mikill skaði ef það yrði þar sem mikil og erfið
uppbygginig hefur átt sér stað undanfarin ár. Loks var farið að hylla
undir að við tefldum fram frambærilegu liði byggðu á heimastúlkum í
lykilstöðum. |
|
Nánar...
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 1 - 15 af 881 |