UMFG
Heim > Fréttir
þriðjudagur, 07 september 2010
 
 
Fréttir
Jafntefli við Hauka Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 06 september 2010
Grindavík skoraði tvö mörk í uppbótartíma gegn botnliði Hauka og tryggði sér eitt stig í Pepsideild kvenna sem voru nokkur vonbrigði því Grindavík sundurspilaði Hauka á köflum en misnotaði ein sex dauðafæri. Þar sem FH vann Breiðablik afar óvænt er Grindavík í bullandi fallbaráttu og mætir Val og Fylki í tveimur síðustu umferðunum sem er ekki auðvelt verkefni.

Haukar lék undan strekkingsvindi í fyrri hálfleik og náðu forystu með markskoti lengst utan af velli skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik var einstefna að marki Hauka og Grindavík óð í færum, sérstaklega framherjinn Shaneka Gordon sem var algjörlega fyrirmuna að skora lengst af. Í staðinn bættu Haukar við öðru marki, aftur með skoti af löngu færi. En Grindavíkurstelpum til hróss verður að benda á að þær gáfust aldrei upp. Gordon minnkaði muninn með skallamarki þegar klukkan sló 90 mínútur og aðeins mínútu seinna jafnaði Sara McFadden metin. Úrslitin 2-2 en Grindavík hefði sannarlega þurft á öllum þremur stigunum að halda.
Grindavík-Haukar Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
föstudagur, 03 september 2010

Loic skrifar undir nýjan samning Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 31 ágúst 2010
Loic Mbang Ondo varnarmaður Grindavíkurliðsins hefur skrifað undir tveggja ára samning við liðið.
Hann hefur staðið sig með prýði með Grindavíkurliðinu í sumar og hefur líkað vel dvölin í bænum. Loic er tvítugur og er yngri bróðir Gilles Mbang Ondo, markahróks Grindavíkurliðsins.
Jósef valinn í U-21 Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 31 ágúst 2010
Eyjólfur Sverrirson, þjálfari U-21 landsliðs karla, hefur valið Jósef Kristinn Jósefsson í hópinn sem mætir Tékklandi 7.september næstkomandi.

Er leikurinn liður í riðlakeppni fyrir EM og búast má við nokkuð efiðum leik þar sem  Tékkar eru efstir í riðlinum, taplausir eftir sex umferðir.

En í íslenska landsliðinu eru margir af framtíðar-landsliðsmönnum okkar og á Jósef sannarlega heima í þeim hópi.
Grindavík - Breiðablik Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 30 ágúst 2010
Seinni leikur Grindavíkur og Breiðablik sama daginn fór fram á Grindavíkurvelli þar sem karlaliðin áttust við, sá leikur fór líka 4-2 fyrir Breiðablik.

Gilles Mbang Ondo tók út leikbann og í hans stað kom Óli Baldur inn í liðið en annars sama lið og sigraði FH og ÍBV í síðustu viku.
Fyrstu mínúturnar voru rólegar þar sem liðin gáfu lítil færi á sér, völlurinn blautur og leikmenn í smá vandræðum með að fóta sig á honum.
Fyrsta mark leiksins kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var Kristinn Steindórsson þar að verki.  Auðun Helgason var nálægt því að jafna rétt áður en Valgeir flautaði til hálfleiks en inn vildi boltinn ekki.

Blikar komust í 2-0 á 50 mínútu og við það virtist slökkva neistinn hjá okkar mönnum.  Gestirnir settu tvö í viðbót með stuttu millibili á 76. og 79. mínútu.  Á þessum tíma komu þrír leikmenn inn á hjá Grindavík, Gjorgi Manevski sem skoraði á 87. mínútu, Emil Daði Símonarson sem minnkaði muninn í 4-2 á 90 mínútu og Ray Anthony Jónsson sem lagði upp bæði mörkin.

Grindavík náði því ekki að lyfta sér upp töfluna í þetta skipti. Næsti leikur 12. september þegar Haukar koma í heimsókn.  Í millitíðinni er landsleikjahlé.
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 1344
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið