Góður fundur í dag þar sem farið var yfir
framhaldið. Aðalmálið er vitaskuld Nettómótið sem haldið verður þann 6.
og 7. mars næstkomandi.
Ákveðið var að fara alla leið með
þetta mót að þessu sinni og gista. Á morgun er síðasti dagurinn til að
skrá sig á þetta mót hjá okkur. Við viljum vera með okkar hluti á
hreinu í tíma svo við getum raðað niður í lið og séð hvað þau eru mörg.
Síðasti séns til að greiða mótstgjaldið ( 5.000 kr , 50% systkina
afsláttur) er á föstudaginn, því fyrr því betra.
Reikningsnúmerið er: 515-26-25683 kt. 250683-3679 ( Atli Geir Júlíusson)
Við
Gígja munum setja upp vaktaplan þegar að leikjaniðurröðun verður klár í
næstu viku og þá raðið þið ykkur niður á vaktir ( allir taka a.m.k.
eina vakt á hvorum degi) á stuttum fundi um miðja næstu viku ( vonandi
fáum við leikjaniðurröðun um helgina og þá getur fundurinn verið á
mán/þri). Best er að hafa þetta eins skipulagt og hægt er þ.e.
dagskrána hjá hverju liði svo að foreldrar/aðstandendur sem ekki eru á
vakt :) viti nákvæmlega hvar sín stelpa er á hverjum tíma til að getað
fylgst með.
Endilega látið okkur vita sem fyrst ef þið eruð tilbúinn að gista ;)
Ég
verð með útprentuð eintök á æfingu á morgun bæði með upplýsingum um
mótið og síðan viðburðardagatal, líkt og á fundinum í dag. Þau skjöl
verða aðgengileg hér að ofan innan skamms.
Þetta verður bara gaman..... þanngað til næst
Atli Geir (s; 849-1612)
3. umferði í Íslandsmóti ( 5. og 6. bekkur kvenna)
Höfundur Atli og Gígja
sunnudagur, 14 febrúar 2010
Þriðja umferð 5. og 6. bekkjar kvenna í Íslandsmóti fór fram núna um helgina en stelpurnar fóru til Hveragerðis að þessu sinni. Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel og voru félaginu til sóma innan sem utan vallar.
Fyrsti leikurinn var gegn Keflavík b en leikir þessara liða hafa verið gríðarlega spennandi í vetur, en stelpurnar hafa unnið báða leikina með 2 og 9 stigum. Stelpurnar byrjuðu leikinn af krafti og voru að vinna 13 - 6 eftir tvo leikhluta og 21-8 eftir þrjá. Leikar jöfnuðust í 4 leikhluta og var 8 stiga munur áður en liðin fóru í seinasta leikhlutann. Stelpurnar okkar skoruðu fyrstu körfuna í seinasta leikhlutanum en síðan komu 10 sig Keflavíkur í röð og staðan orðin jöfn og 1 mínúta til leiksloka. Það var síðan Viktoría Líf sem kláraði leikinn fyrir okkur með 2-ja stiga skoti innan úr teignum. Góður sigur hjá stelpunum þó rúmur seinasti leikhlutinn hafi ekki verið vel leikinn.
Föstudagskvöldið 13.nóvember nk. mun verða haldið „Sleep-Over“ í íþróttahúsinu. Fjörið mun hefjast kl. 20:00. Mæting er við inngang að litla salnum (þar sem miðasala á m.fl. leiki er). A.T.H. það verður enginn kvöldverður svo stelpurnar ættu að vera búnar að borða. En þær mega hafa með sér sælgæti/snakk/gos til þess að hafa um kvöldið.
Þar sem þarf að hafa með: • Dýnu • Sængurföt/svefnpoki • Náttföt • Kvöldsnarl • Góða skapið
Það væri gott að fá að vita í þessari viku hverjar ætla að mæta svo endilega hafið samband við okkur. Körfuboltakveðja, Atli Geir og Gígja (s:849-1612, )
P.S. Viljum minna á bloggið okkar inn á www.umfg.is þar setjum við inn allar tilkynningar um starfið og á næstu dögum koma inn myndir frá Sauðárkróki.
Fjölliðamót Minnibolta kvenna
Höfundur Unglingaráð körfuknattleiksdeildar
miðvikudagur, 21 október 2009
Þá er komið að fyrsta móti af fjórum í íslandsmótinu hjá stelpunum. Að þessu sinni verður mótið haldið á Sauðarkróki. Lagt verður af stað á laugardaginn 24.okt og komið heim á sunnudeginum 25.okt. Mæting upp í íþróttahús á laugardagsmorguninn kl. 9:00. Heimkoma er áætluð milli klukkan 15:00 og 16:00 á sunnudeginum. Farið verður norður á 15 manna bíl. Kostnaður við ferðina er 4.000 kr fyrir keyrslu og gistingu. Stelpurnar mega hafa með sér 1.500 kr. í vasapening. (Ekki meira en 1.500 kr inni í þvi eru 750 kr fyrir pítsuveislu á laugardagskvöldið)
Listi yfir hvað þarf að vera með: • 4.000 kr í ferðakostnað. Hægt er að leggja ferðakostnaðinn inn á unglingaráð: 1193-15-200143 og kt.550591-1039. Það þarf þó að vera búið að leggja inn fyrir kl.16 á föstudeginum 23.okt. • 1.500 kr í vasapening. (Fyrir kvöldmat, kælivöru og smá kvöldvöku) • Íþróttaföt • Föt til skiptanna • Náttföt • Svefnpoka/sæng • Dýnu • Nesti – mikið af hollu og góðu nesti. • Góða skapið og nóg af því.
Við þjálfararnir munum bæði fara með ásamt einu foreldri og munum við vera með símann okkar. Endilega hafið samband við okkur ef eitthvað er eða til að fá að heyra í stelpunum.
Með kærri kveðju, Atli Geir og Gígja (s.849-1612, )
P.S. Við erum komin með vefsvæði inn á www.umfg.is . Þar er farið inn í körfuknattleiksdeild og í mb.stúlkna 5.og 6.bekkur.
Skemmtikvöld
Höfundur Unglingaráð körfuknattleiksdeildar
sunnudagur, 11 október 2009
Þá er komið að fyrsta skemmtikvöldi vetrarins! ;o) Það verður þriðjudaginn 13.október kl. 18:00- 20:00 Það verður haldið að heima hjá okkur (Gígju og Atla) á Staðarhrauni 24b (neðri hæð, hægra megin). Það sem þarf að vera meðferðis er góða skapið og 300 kr.
Svo verða fyrstu “Boltdrottning” mánaðarins krýnd.
Hlökkum til að sjá ykkur allar!
Kv. Atli Geir og Gígja (s:849-1612, e-mail: _)
Æfinginn á morgun er klukkan 10 ekki 9
Höfundur Gígja og Atli
föstudagur, 09 október 2009
Æfingin á morgun laugardag verðu klukkan 10 en ekki 9.