Góður fundur í dag þar sem farið var yfir
framhaldið. Aðalmálið er vitaskuld Nettómótið sem haldið verður þann 6.
og 7. mars næstkomandi.
Ákveðið var að fara alla leið með
þetta mót að þessu sinni og gista. Á morgun er síðasti dagurinn til að
skrá sig á þetta mót hjá okkur. Við viljum vera með okkar hluti á
hreinu í tíma svo við getum raðað niður í lið og séð hvað þau eru mörg.
Síðasti séns til að greiða mótstgjaldið ( 5.000 kr , 50% systkina
afsláttur) er á föstudaginn, því fyrr því betra.
Reikningsnúmerið er: 515-26-25683 kt. 250683-3679 ( Atli Geir Júlíusson)
Við
Gígja munum setja upp vaktaplan þegar að leikjaniðurröðun verður klár í
næstu viku og þá raðið þið ykkur niður á vaktir ( allir taka a.m.k.
eina vakt á hvorum degi) á stuttum fundi um miðja næstu viku ( vonandi
fáum við leikjaniðurröðun um helgina og þá getur fundurinn verið á
mán/þri). Best er að hafa þetta eins skipulagt og hægt er þ.e.
dagskrána hjá hverju liði svo að foreldrar/aðstandendur sem ekki eru á
vakt :) viti nákvæmlega hvar sín stelpa er á hverjum tíma til að getað
fylgst með.
Endilega látið okkur vita sem fyrst ef þið eruð tilbúinn að gista ;)
Ég
verð með útprentuð eintök á æfingu á morgun bæði með upplýsingum um
mótið og síðan viðburðardagatal, líkt og á fundinum í dag. Þau skjöl
verða aðgengileg hér að ofan innan skamms.
Þetta verður bara gaman..... þanngað til næst
Atli Geir (s; 849-1612)
Actavismótið
Höfundur Atli og Gígja
föstudagur, 18 desember 2009
Actavis-mótið fer fram næsta sunnudag 20.desember en það er haldið á
Ásvöllum í Hafnarfirði. Við erum með 3 lið skráði í keppni í þessum
aldursflokk og má sjá liðaskiptingu og leikjaniðurröðun hér að neðan.
Hver leikmaður þarf að vera kominn í síðasta lagi hálftíma fyrir fyrsta
leik í Íþróttahúsið á Ásvöllum. Ef foreldrar komst einhverra hluta ekki
með geta þeir haft samband við okkur eða aðra foreldra sem fara á mótið
upp á far fyrir sína stúlku. Upplýsingar um mótið:
Mótsgjald er 1500 kr á mann sem við tökum við á mótinu sjálfu.
Leiktími er 2 x 12 mínútur þar sem 4 leikmenn eru inn í hvorru liði í einu.
Hver leikmaður þarf að mæta í a.m.k. gulum bol þar sem búningarnir eru ekki tilbúnir.
Við
þurfum aðstoð foreldra við að stjórna leikjum því við erum með svo mörg
lið í mótinu. Nokkrir foreldrar hafa nú þegar boðið fram aðstoð sína en
okkur vantar fleiri
Ef einhverjar spurningar eru varðandi mótið endilega hafið þá sambandi við okkur.
Kveðja Atli og Gígja, sími 849-1612, email:
Upplýsingar varðandi Actavismótið
Höfundur Unglingaráð körfuknattleiksdeildar
miðvikudagur, 02 desember 2009
Mótið verður haldið 19. – 20. desember að Ásvöllum í Hafnafirði og kostar 1.500 kr á hvern leikmann.
Við þurfum að vita hverjar ætla að mæta í síðasta lagi 3.desember. Skráning í mótið lýkur 3.desember og því verðum við að hafa fjölda þáttakenda á hreinu til að ákveða fjölda liða sem taka þátt frá okkur. Því miður er ekki hægt að segja til um það núna hvaða tímasetningar verða á leikjunum því það á eftir að raða mótinu upp.
Fyrirkomulagið verður samt sem áður þannig að hvert lið spilar aðeins annan hvorn daginn og aldrei lengur en 3,5 klst. af deginum. Það er þá þannig að ef lið 1 byrjar að spila kl. 09:00 á laugardeginum ætti það lið að hafa lokið keppni c.a. 12:30 sama dag.
Ýtarlegri upplýsingar um mótið eins og t.d. leikjaniðurröðun og liðaskipan berst til ykkar fljótlega.
ATH: Þeir foreldrar sem ekki fengu póst fra okkur í dag og eru þar af leiðandi ekki á póstlistanum okkar vinsamlegast sendið email til okkar svo við getum bætt ykkur við á listann.
Kveðja Atli og Gígja, s: 849-1612; email:
Æfingaleikir við Njarðvík
Höfundur Atli og Gígja
laugardagur, 07 nóvember 2009
Sunnudaginn 8.nóvember nk. verður farið í heimsókn til granna okkar í Njarðvík og spilað þar æfingaleiki við 3.og 4. bekk. Mæting er í íþróttahúsið í Njarðvík kl. 9:15.
Öllum foreldrum er auðvitað velkomið að koma með og horfa á en þeir sem sjá sér ekki fært að koma með geta haft samband við okkur í sambandi við keyrslu eða þá að fá far hjá öðrum. Þar sem við erum með svo margar stelpur þurfum við líklegast að skipta þeim niður í 3-4 lið og þá gætum við þurft 1-2 foreldri til þess að aðstoða við að stjórna leikjunum.
Það væri mjög gott ef þið gætuð haft samband við okkur í dag föstudag bæði til þess að staðfesta mætingu á sunnudaginn (til að vita fjöldann) og einnig ef þið hafið áhuga á því að aðstoða við leikina. Varðandi búninga þá er ekki nauðsynlegt að vera í búning en gott væri ef allar gætu komið í a.m.k. í gulum bol. Eftir leikina verða foreldrar stelpnanna í Njarðvík með léttar veitingar.
Körfuboltakveðja, Atli Geir og Gígja (s.849-1612, )
Skemmtikvöld
Höfundur Unglingaráð körfuknattleiksdeildar
þriðjudagur, 06 október 2009
Þá er komið að fyrsta skemmtikvöldi vetrarins! ;o) Það verður miðvikudaginn 7.október kl. 18:00. Það verður haldið að heima hjá okkur (Gígju og Atla) á Staðarhrauni 24b (neðri hæð, hægra megin). Það sem þarf að vera meðferðis er góða skapið og 200 kr.
Svo verða fyrstu “Boltdrottningar” mánaðarins krýndar.