UMFG
Heim
þriðjudagur, 07 september 2010
 
 
Þjálfarar:         Atli Geir Júlíusson og Gígja Eyjólfsdóttir
S. 898-8447, 849-1612.  Netfang. agj2@hi.is

Æfingar
Þriðjudaga   Kl. 16:10 - 17:00
Fimmtudaga   Kl. 16:00 - 17:00

Viðburðardagatal
MB 1.og 2.bekkur stúlkna
Nettómótið þann 6. og 7. mars Senda
Höfundur Atli og Gígja   
þriðjudagur, 23 febrúar 2010
Sæl öll sömul

Góður fundur í dag þar sem farið var yfir framhaldið. Aðalmálið er vitaskuld Nettómótið sem haldið verður þann 6. og 7. mars næstkomandi.

Ákveðið var að fara alla leið með þetta mót að þessu sinni og gista. Á morgun er síðasti dagurinn til að skrá sig á þetta mót hjá okkur. Við viljum vera með okkar hluti á hreinu í tíma svo við getum raðað niður í lið og séð hvað þau eru mörg. Síðasti séns til að greiða mótstgjaldið ( 5.000 kr , 50% systkina afsláttur) er á föstudaginn, því fyrr því betra.

Reikningsnúmerið er:
515-26-25683 kt. 250683-3679 ( Atli Geir Júlíusson)

Við Gígja munum setja upp vaktaplan þegar að leikjaniðurröðun verður klár í næstu viku og þá raðið þið ykkur niður á vaktir ( allir taka a.m.k. eina vakt á hvorum degi) á stuttum fundi um miðja næstu viku ( vonandi fáum við leikjaniðurröðun um helgina og þá getur fundurinn verið á mán/þri). Best er að hafa þetta eins skipulagt og hægt er þ.e. dagskrána hjá hverju liði svo að foreldrar/aðstandendur sem ekki eru á vakt :) viti nákvæmlega hvar sín stelpa er á hverjum tíma til að getað fylgst með.

Endilega látið okkur vita sem fyrst ef þið eruð tilbúinn að gista ;)

Ég verð með útprentuð eintök á æfingu á morgun bæði með upplýsingum um mótið og síðan viðburðardagatal, líkt og á fundinum í dag. Þau skjöl verða aðgengileg hér að ofan innan skamms.   

Þetta verður bara gaman..... þanngað til næst

Atli Geir (s; 849-1612)

     
Actavismótið Senda
Höfundur Atli og Gígja   
föstudagur, 18 desember 2009
Actavis-mótið fer fram næsta sunnudag 20.desember en það er haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Við erum með 3 lið skráði í keppni í þessum aldursflokk og má sjá liðaskiptingu og leikjaniðurröðun hér að neðan. Hver leikmaður þarf að vera kominn í síðasta lagi hálftíma fyrir fyrsta leik í Íþróttahúsið á Ásvöllum. Ef foreldrar komst einhverra hluta ekki með geta þeir haft samband við okkur eða aðra foreldra sem fara á mótið upp á far fyrir sína stúlku.      
Upplýsingar um mótið:
  • Mótsgjald er 1500 kr á mann sem við tökum við á mótinu sjálfu.
  • Leiktími er 2 x 12 mínútur þar sem 4 leikmenn eru inn í hvorru liði í einu.  
  • Hver leikmaður þarf að mæta í a.m.k. gulum bol þar sem búningarnir eru ekki tilbúnir.
  • Við þurfum aðstoð foreldra við að stjórna leikjum því við erum með svo mörg lið í mótinu. Nokkrir foreldrar hafa nú þegar boðið fram aðstoð sína en okkur vantar fleiri






Liðskipan:

UMFG 10         UMFG 11             UMFG 12
Anita Sif           Jenný Geirdal     Snjólaug
Ásta                  Una Rós             Sigrún
Viktoría            Hulda                   Elisabet
Katrín               Saga                    Unnur
Hekla Eik        Eydís                   Sigurbjörg
Tinna               Þórdís    

Leikjaniðurröðun:

UMFG 10

10:00    UMFG 10    UMFG 12    Völlur 5
11:00    UMFG 10    Keflavik 5    Völlur 4
12:00    UMFG 10    UMFG 11    Völlur 5

UMFG 11

10:00    UMFG 11    Keflavik 5    Völlur 4
11:00    UMFG 11    UMFG 12    Völlur 5
12:00    UMFG 11    UMFG 10    Völlur 5

UMFG 12

13:00    UMFG 12    UMFG 10    Völlur 5
11:00    UMFG 12    UMFG 11    Völlur 5
12:00    UMFG 12    Keflavik 5    Völlur 4


Ef einhverjar spurningar eru varðandi mótið endilega hafið þá sambandi við okkur. 
Kveðja Atli og Gígja, sími 849-1612, email:


Upplýsingar varðandi Actavismótið Senda
Höfundur Atli og Gígja   
miðvikudagur, 02 desember 2009

Mótið verður haldið 19. – 20. desember að Ásvöllum í Hafnafirði og kostar 1.500 kr á hvern leikmann.


Við þurfum að vita hverjar ætla að mæta í síðasta lagi 3.desember. Skráning í mótið lýkur 3.desember og því verðum við að hafa fjölda þáttakenda á hreinu til að ákveða fjölda liða sem taka þátt frá okkur.
Því miður er ekki hægt að segja til um það núna hvaða tímasetningar verða á leikjunum því það á eftir að raða mótinu upp.

Fyrirkomulagið verður samt sem áður þannig að hvert lið spilar aðeins annan hvorn daginn og aldrei lengur en 3,5 klst. af deginum. Það er þá þannig að ef lið 1 byrjar að spila kl. 09:00  á laugardeginum ætti það lið að hafa lokið keppni c.a. 12:30 sama dag.

Ýtarlegri upplýsingar um mótið eins og t.d. leikjaniðurröðun og liðaskipan berst til ykkar fljótlega.

ATH:
Þeir foreldrar sem ekki fengu póst fra okkur í dag og eru þar af leiðandi ekki á póstlistanum okkar vinsamlegast sendið email til okkar svo við getum bætt ykkur við á listann.

Kveðja Atli og Gígja, s: 849-1612; email:

Skemmtikvöld Senda
Höfundur Atli Geir og Gígja   
fimmtudagur, 08 október 2009
Þá er komið að fyrsta skemmtikvöldi vetrarins! ;o)
Það verður fimmtudaginn 7.október (á morgun) kl. 18:00.
Það verður haldið að heima hjá okkur (Gígju og Atla) á Staðarhrauni 24b (neðri hæð, hægra megin).
Það sem þarf að vera meðferðis er góða skapið og 200 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur allar!

Kv. Atli Geir og Gígja (s:849-1612, e-mail: )
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið