UMFG
Heim > 2.flokkur kk
föstudagur, 03 september 2010
 
 
Æfingatafla
Mánudagar
 Þriðjudagar
 Fimmtudagar
 Föstudagar
 Laugardagur 
19:30 (Hópið)
 18:10 (Reykjaneshöll)
 18:10 (Reykjaneshöll)
 19:30 (Hópið)
09:00 (Hópið) frjáls mæting
 

Nafnalisti/símaskrá
Fræðsla um mataræði
Faxaflóamót
Auka-hlaup
Styrktaræfingar - The 11+
Varnarveggur
Æfingarplön

Þjálfarar: Eysteinn Hauksson, sími 694-5215, email: 10@umfg.is
Snorri Jónsson, sími 6608887, email: ubi@simnet.is
2.flokkur kk
Æfingaleikur með meistaraflokki - Prógram framundan Senda
Höfundur Eysteinn   
fimmtudagur, 02 september 2010

Binni, Milos, Lolli, Gummi Egill og Gunnar Þorsteins komu allir við sögu í æfingaleik meistaraflokks gegn Stjörnunni á Grindavíkurvelli í dag og hljóta fyrir það hamingjuóskir frá tæknideildinni. Fleiri leikmenn áttu kost á því en voru fjarverandi af mismunandi ástæðum. Leikurinn tapaðist 0-1.

Svona fer þetta fram hjá okkur á næstu dögum:

Föstudagur og laugardagur: Engin æfing. Njarðvíkingar mæta í gæslu á meistaraflokksleikinn.

Sunnudagur: Njarðvíkingar æfa kl. 14:00 og Grindvíkingar kl. 18:00.

Næsti leikur í Íslandsmótinu verður svo miðvikudaginn 8. september, þegar við heimsækjum Framara.

Æfingar fimmtudags - Sigur á Vestmannaeyjingum Senda
Höfundur Eysteinn   
fimmtudagur, 02 september 2010

Æfingar dagsins í dag:

Grindvíkingar mæta í Gula hús kl. 17:10 (klárir í upphitun kl. 17:30) og taka þátt í æfingaleik meistaraflokks gegn Stjörnunni.

Njarðvíkingar mæta á meistaraflokksæfingu kl. 18:00.

Leikið var gegn Í.B.V./K.F.S. á miðvikudag og fór leikurinn fram í Grindavík. Skemmst er frá því að segja að eftir markalausan fyrri hálfleik vannst góður 2-0 sigur með mörkum frá Svenna og Ísleifi.

Íslandsmót, 1. sept, 2010. Grindavíkurvöllur.

Grindavík/Njarðvík - Í.B.V./K.F.S. 2-0 (Svenni, Ísleifur)

Liðið:

Mark: Binni

Öftustu fjórir: Bragi, Jónas, Gunnar Þ., Gummi E.

Miðja: Gísli, Ísleifur, Svenni

Fremstu þrír: Milos, Magnús (3.fl.), Lolli (Hákon 3.fl. Umfg (60.))

Ónotaðir varamenn: Ísak, Hákon (3.fl. umfn), Daníel Leó (3.fl.).

Leikur gegn Í.B.V./K.F.S. Senda
Höfundur Eysteinn   
þriðjudagur, 31 ágúst 2010

Leikið verður gegn ÍBV/KFS á miðvikudag og hefst leikurinn kl. 16:30. Mæting er í Gula húsið kl. 15:30 og þið sjáið um smáatriðin.

Hópurinn verður þannig:

Binni, Bragi, Gummi Egill, Gunnar Þ., Ísak, Ísleifur, Jónas, Jón Unnar, Milos, Svenni, Gísli og Lolli. Að auki koma úr 3. flokki þeir Daníel Leó og Hákon (Grindavík) og Magnús og Augustine eða Hákon (Njarðvík)

Mikilvægur leikur. Stefnum á annan sigurinn í röð! 

Æfingar (athuga breytingu!) Senda
Höfundur Eysteinn   
laugardagur, 28 ágúst 2010

Þriðjudagur: Sameiginleg æfing í Grindavík kl. 18:00. Mæting á æfingasvæðið fyrir neðan Hópið.

Miðvikudagur: Leikið í GRINDAVÍK gegn ÍBV/KFS, kl. 16:30.

Fimmtudagur: Meistaraflokkur leikur æfingaleik gegn Stjörnunni. Einhverjir Grindvíkinga spila þann leik, Njarðvíkingar æfa sín megin.

Stórleikur Binna tryggði sigur í Kópavogi Senda
Höfundur Eysteinn   
fimmtudagur, 26 ágúst 2010

ATHUGIÐ! Prógram föstudags er þannig að Grindvíkingar mæta á meistaraflokksæfingu kl. 17:00 og Njarðvíkingar sömuleiðis sín megin, en kl. 18:00. Ekki verður æft á laugardag, en á sunnudag æfum við líklega fyrripart dags, en formið á því verður tilkynnt er nær dregur.

Eftir fjóra erfiða leiki sem höfðu aðeins gefið eitt stig, náðust loks 3 stig í hús eftir góðan sigur á útivelli gegn H.K./Ými, 1-2. Jón Unnar kom okkur af harðfylgi í 1-0 eftir að hafa sloppið í gegn og staðið af sér tæklingu, en þá var vel liðið á fyrri hálfleik. Milos fékk svo góða gjöf frá Svenna er skammt var liðið á seinni hálfleik og kláraði af yfirvegun í fjærhornið, nýlentur eftir sex vikna dvöl í föðurlandinu, 0-2.

Eftir það sóttu Kópavogsbúar mikið, en þeir komust lítt áleiðis eða þar til um 7mínútur voru eftir en þá slapp vinstri kantmaður þeirra í gegn og minnkaði muninn.

Ekki er hægt að skilja við þennan leik án þess að minnast á þátt markvarðar okkar, Binna, sem átti stórleik og varði meðal annars fjóra bolta af þeirri tegund sem enginn hefði getað gagnrýnt hann fyrir, ef hefðu endað í netinu. Af þessum fjórum var einn alveg í lokin, í stöðunni 1-2. 

Greinilegt að hann hefur hvílt sig vel í gærkvöldi :)

Íslandsmót, 26.ágúst, 2010. Fagrilundur.

H.K./Ýmir - Grindavík/Njarðvík 1-2 (Jón Unnar, Milos)

Liðið:

Mark: Binni

Öftustu fjórir: Bragi, Jónas, Gunnar Þ., Guðjón

Miðja: Gísli (Augustine ((3.fl)65.), Gummi Egill, Svenni

Kantar: Milos (Lolli 89.) og Ísleifur

Fremstur: Jón Unnar

Ónotaðir varamenn: Ísak, Daníel Leó (3.fl.), Jón Valdimar (3.fl.).

Leikur gegn H.K./Ými Senda
Höfundur Eysteinn   
miðvikudagur, 25 ágúst 2010

Mæting í leikinn á morgun er kl. 17:20 en hann hefst kl. 18:30 í Fagralundi í Kópavogi.

Munið smáatriðin (teip, vatn, upphitunarföt o.s.frv).

Áfram með smjörið!

Æfingar með meistaraflokkum í dag - Sameiginlegt á morgun. Senda
Höfundur Eysteinn   
þriðjudagur, 24 ágúst 2010

Meistaraflokksæfing verður í Grindavík í kvöld kl. 18:00 og mætum við á hana, eldhressir.

Njarðvíkingar mæta á meistaraflokksæfingu kl. 18:00, þeim megin.

Liðin æfa svo saman í Grindavík á miðvikudag kl. 18:00 og svo er leikur gegn H.K./Ými í Fagralundi, Kópavogi á fimmtudag, kl. 18:30. 

Æfing á mánudag Senda
Höfundur Eysteinn   
sunnudagur, 22 ágúst 2010

Þar sem engin meistaraflokksæfing er á mánudag, þá tökum við Grindvíkingar tækni- og skotæfingu á "gamla aðal", kl. 17:00.

Njarðvíkingar sem hafa ekki heyrt af næstu æfingu, hafið samband við Snorra.

Við munum svo æfa með meistaraflokkunum á þriðjudag en líkast til hafa sameiginlega æfingu á miðvikudag.

Fylgist með síðunni.

Æfing í Grindavík á laugardag Senda
Höfundur Eysteinn   
föstudagur, 20 ágúst 2010
Grindvíkingar mæta á meistaraflokksæfingu á laugardag, kl. 11:00. Ég verð með 6. flokk í Borgarnesi, þannig að ég verð ekki á staðnum, en Janko sér um ykkur.
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 19 af 153
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið