UMFG
Heim > Körfuknattleiksdeild
þriðjudagur, 07 september 2010
 
 


Körfuknattleiksdeild
Reykjanes-cup Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
föstudagur, 03 september 2010
Nú stendur yfir Reykjanes-cup sem haldið er ár hvert í tengslum við Ljósanótt.  Í gær var spilað í Grindavík þar sem öll Suðurnesjaliðin töpuðu.
Leikirnir fóru þannig:
Grindavík 98 - Fjölnir 101
Keflavík 66 - ÍR 89
Njarðvík 92 - Snæfell 102

Í kvöld er leikið í Keflavík og á Grindavík leik klukkan 21:00 þegar þeir mæta ÍR

Einnig eru stelpurnar að leika í hraðmóti UMFN og Kosts sem einnig er haldið í tilefni Ljósanætur.
Þær byrjuðu að spila við Njarðvík og töpuðu 41-44.  Í næsta leik sigruðu þær Haukastelpur 32-25 en í framlengdum leik við Hamar máttu þær þola tap 38-41

Í kvöld fara úrslitaleikirnir fram, Grindavík og KR mætast klukkan 16:45 og leikir um sæti seinna um kvöldið.
Reykjanes cup og hraðmót Njarðvíkurkvenna. Senda
Höfundur Sibbi   
miðvikudagur, 01 september 2010
Eins og allir vita þá er körfuboltinn byrjaður að skoppa og taka meistaraflokksliðin okkar bæði þátt í mótum um helgina, í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Nánar...
Ljósanætur-hraðmót Senda
Höfundur Umsjónarmaður   
þriðjudagur, 31 ágúst 2010
1.-3. september fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík hraðmót í tengslum við Ljósanótt.  Kvennalið Grindavíkur tekur þátt ásamt flestum af sterkustu liðum landsins að viðbættu U-16 ára landsliðinu.

Grindavík mætir Njarðvík í opnunarleiknum á morgun miðvikudag klukkan 17:00.
Klukkan 18:30 mæta þær Haukum og klukkan 20:00 Hamar.

Úrslitaleikir fara svo fram á föstudaginn.
Yfirlýsing frá stjórn körfuknattleiksdeild Grindavíkur Senda
Höfundur Stjórn kkd. UMFG   
þriðjudagur, 24 ágúst 2010
Stjórn kkd. UMFG vill koma því á framfæri að grein sú sem birtist á heimasíðu UMFG  fimmtudaginn 19 ágúst og skrifuð af Ólafi Þór Jóhannssyni  lýsir eingöngu hans skoðun. Einhverjar sögusagnir  hefur stjórnin heyrt um að hún standi að einhverju leiti að baki greininni, en það á sér enga stoð

Greinin er skrifuð af Ólafi og þar lýsir hann sinni skoðun.

Auðvitað þykir okkur leitt að missa þessa leikmann frá okkur ,sérstaklega þar sem við þetta eru ákveðnir burðarstólpar í hópnum.
Við verðum að virða þeirra ákvarðanir og vonast jafnframt eftir því að þær komi fljótt til baka og spili í Grindavíkurbúningum ,reynslunni ríkari.

Stjórnin vill óska Ingibjörgu og Írisi alls hins best í framtíðinni og megi þeim vegna vel á nýja staðnum .
Þær eru ævinlega velkomnar aftur
Hvar er Grindavíkurhjartað? Senda
Höfundur Ólafur þór Jóhannsson   
fimmtudagur, 19 ágúst 2010
Nú stendur stjórn körfunnar frami fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort draga eigi kvennaliðið í úrvalsdeild úr keppni vegna skorts á leikmönnum.  Það yrði mikill skaði ef það yrði þar sem mikil og erfið uppbygginig hefur átt sér stað undanfarin ár.  Loks var farið að hylla undir að við tefldum fram frambærilegu liði byggðu á heimastúlkum í lykilstöðum.
Nánar...
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 15 af 883
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið